Main Contents

Facebook og Amazon tengja saman

Allt ,Ummæli (0)

Merkilegt skref hefur verið stigið í samtvinnun Facebook og netverslunarinnar Amazon. Núna er mögulegt fyrir þá sem til dæmis ætla að gleðja vin á Fésinu á afmælisdaginn að fá fram tillögu um gjöf frá óskalista viðkomandi afmælisbarns á Amazon. Fulltrúar Amazon fara býsna varlega í sakirnar með hvernig samtenging er útfærð vegna persónuverndarmála en umræða um slíkt vegna Facebook er linnulaus og stöðug.

Sjá nánar

Einar Haukur Reynis @ júlí 29, 2010

List sprottin úr eldfjallaösku

Allt ,Ummæli (0)

Meðan að Eyjafjallajökull gerði fólki lífið leitt um allar jarðar þá voru sumir strandaglópar iðnir við að nýta tækifærið til listsköpunnar, í mjög sérstöku verkefni. Listamaður nokkur sem var strandaglópur á Írlandi sendi skeyti til að fá fólk víðsvegar við svipaðar aðstæður að taka fyrir eins verkefni. Eitt þeirra var til dæmis að fara á næsta bar og biðja barþjóninn um að útbúa kokkteil sem átti að heita Eldfjall. Þegar þetta var um garð gengið var efninu frá fólkinu safnað saman og hver og einn skilaði því frá sér sem var upplifun þar aðstæður allra voru þær sömu. Núna er verkefnið komið lengra á veg og útgáfa að verða að veruleika.

Sjá nánar

Einar Haukur Reynis @ júlí 29, 2010

Flokkadrættir í tækjaaðdáun

Allt ,Ummæli (0)

Það eru ákveðin og mjög eindregin persónueinkenni meðal þeirra sem eru annaðhvort hrifnir, eða ekki, af Apple iPad. Þeir sem hallast að iPad eru gjarnan fagfólk sem er mjög drifið af eigin velgengni og vinnusjúklingar, jafnvel á kostnað manngæsku. Þeim sem er í nöp við iPad hafa það hinsvegar sameiginlegt að hafa mikinn og djúpstæðan tækniáhuga og það sem fannst sameiginlegt með nördunum var ást á Linux. Fyrir því fólki er iPad harðlæst box, sem er tabú í Linux heimi.

Sjá nánar

Einar Haukur Reynis @ júlí 29, 2010

Nýlegar færslur: